......

Sirra Guðnadóttir

17.10.2006 13:46:57 / sirragudna

Costa Del Sol 2006

Jæja ætli ég skelli ekki inn smá ferðasögu fyrir ykkur! 8) 

Við lögðum af stað uppá flugvöll um 9:30, 5.okt. Mamma hans Arnars skutlaði okkur. Vorum komin frekar snemma þannig að við þurftum ekkert að bíða í neinum röðum eða neitt vesen, komumst bara strax inn.;) Þegar inn var komið þá fórum við að leita að einhverju til að borða, en það er nú ekki mikið úrval þarna þannig að við keyptum einhverjar vondar langlokur! Jakk :(ég var nú ekki mjög ánægð með það..  Svo var bara allt troðið af fólki í fríhöfninni, það var nefnilega seinkun á öllum flugferðunum nema okkar, við vorum svo voðalega heppin!:P

Við lentum svo á Malaga um áttaleytið og þá tók við ca. klukkutíma bið eftir töskunum.. vá ég hafði nú ekki alveg þolinmæði í það... fórum svo bara með rútu uppá hótel. Fengum ágætt herbergi á 6.hæð, þannig að það var flott útsýni yfir sjóinn og pínu hluta af hótelgarðinum.

Við skelltum okkur í tívolí sem var þarna rétt hjá, fórum með öðru pari. Það var rosalega gaman! Fórum í fullt af tækjum.. en svo þorði ég ekki í 3 tæki (tvö sem ég hef reyndar farið áður í), þorði sko ekki í svona fallturn sem var þarna! Hann fer 65 metra uppí loftið og svo á 90 km. hraða niður, tekur ekki nema svona 5 sek. að fara niður!! klikkun...:!:

Við fórum í tvær ferðir, á mánudeginum fórum við í verslunarferð til Marbella, fengum 4 tíma í verslunarmiðstöð sem er þar og það var alltof stuttur tími!8| Úfff þetta leið svooo hratt að við náðum ekki að kaupa eins mikið og við ætluðum.. en það verður bara að hafa það! Náðum þó að kaupa okkur eitthvað smá! Ég elska að versla svona í útlöndum! H&M var þarna.. það er sko uppáhaldsbúðin mín.. híhí.. dýrka nærfatadeildina þar! Allt svo flott og kostar ekki neitt!! :haha:

Svo á þriðudeginum fórum við til Gíbraltar. Það var bara ágætt.. mér fannst skemmtilegast að skoða apana sem eru þar, þeir eru svo sætir að ég var að pæla í að reyna að stela einum litlum en svo þorði ég því ekki! :$

Við vorum mjög heppin með veður á meðan við vorum þarna, það var bara í kringum 30 stig og sól allan tímann 8)(stundum komu pínu ský). En þessa tvo daga sem við fórum í ferðirnar þá var versta veðrið, meira skýjað og ekki eins heitt þannig að það var ágætt..

Við komum svo heim fimmtudaginn 12.okt. Rútan fór frá hótelinu kl. 05:25 um morguninn. Þegar við komum svo uppá flugvöll þá fengum við að vita það að það yrði 2 tíma seinkun! Gaman! Við þurftum svo að millilenda í Jerez, en þangað var ca. 15 mín. flug. Þar þurftum við öll að fara út með allan handfarangur og allt, aftur í gegnum vopnaleit og svo tók við bið... ekki mjög gaman en við lentum svo að lokum á Keflavíkurflugvelli um 14:30. Mamma var svo góð að sækja okkur á flugvöllinn..

Jæja nenni ekki að skrifa meira!  Hef aldrei skrifað svona langt blogg, eða allavegana ekki í mjööög langan tíma haha :haha:

 

 




» 10 hafa sagt sína skoðun

13.10.2006 09:45:08 / sirragudna

komin heim

Hæhæ

Jæja núna er ég komin heim á klakann aftur frá Costa Del Sol. Lentum um 14:30 í gær.. mjög gott að vera komin aftur heim :) en það var æði úti!!! fengum rosalega gott veður.. óvenjugott miðað við árstíma þannig að maður getur nú ekki annað en verið sáttur :haha: það var bara sól og 30 stiga hiti... hótelið var mjög fínt.. vorum bara ánægð með allt.. nema það að allir staðirnir voru farnir að loka mjög snemma eða voru bara ekkert opnir enda svona aðal ferðamannatíminn búinn.. bara gamalt fólk þarna sem fer snemma að sofa :) haha   en þetta var samt bara fínt ;)

en ég get ekki haft þetta lengra núna.. skrifa kannski aðeins betur um ferðina um helgina, er að vinna núna.. kisskiss  :lol:


» 4 hafa sagt sína skoðun