......

Sirra Guðnadóttir

28.12.2004 23:19:17 / sirragudna

Smá fréttir frá Kanarí

Hallo Ísland!!

Núna erum vid Arnar nýkomin upp á hótel, vorum ad borda á Hard Rock. Í dag var sól eftir hádegi, en svolítid mikid rok, en vid nádum ad vera í skjóli í gardinum og svo á svolunum :lol:  Vedrid hefur verid svona allt í lagi, Svolítid mikid skýjad oft og rok... En vid erum búin ad skemmta okkur konunglega... Jeaja nennum ekki ad skrifa meira á thetta lyklabord, thad er svo leidinlegt. Vonum ad thid hafid thad gott á Íslandi :D

Sólarkvedja frá Sirru og Arnari 8)


» 5 hafa sagt sína skoðun

20.12.2004 23:43:00 / sirragudna

Jæja þá er komið að því....

....að við Arnar förum til Kanarí..LOKSINS :haha: Biðin er búin að vera svoooo löng og ströng :) en vel þess virði.... allavega erum við að fara á morgun, förum í loftið kl. 15:15. Erum búin að vera að þvo, keyra út jólapakkana og pakka niður í allan dag ;) Ég veit ekki hvort ég eigi eftir að skrifa inn á síðuna á meðan ég er úti en það er samt aldrei að vita.... þannig að þið fylgist bara spennt með.. kannski fáið þið spennandi ferðasögu beint í æð, hver veit!! :haha: En allavegana... hafiði það gott á meðan og hlakka til að sjá ykkur á nýju ári!! Kisskiss

» 4 hafa sagt sína skoðun

08.12.2004 18:27:22 / sirragudna

hæhó

Jæja ætli ég ætti ekki að skrifa eitthvað hér inn fyrst að ég er í tölvunni! ég fer nefnileg voðalega sjaldan í tölvuna núna... Er alltaf bara að vinna.. voða dugleg :)

Helgin var mjög fín. Á föstudaginn var ég bara heima og horfði á Idol með Arnari, mömmu og pabba, og fékk mér smá bjór svona í tilefni þess að vera búin í prófum! á laugardaginn var svo pottapartý heima hjá Arnari... þar var sko mikið stuð!! :D svo á sunnudaginn fórum við Arnar og mamma hans og pabbi á Selfoss í mat til mömmu og pabba! Ætluðum reyndar varla að komast á leiðarenda vegna veðurs..það var svo mikil rigning og slæmt skyggni og bíllinn var eineygður þannig að það var voða erfitt að sjá út.. en við komumst heil á húfi á Selfoss og fengum dýrindis lambalæri og ís í eftirrétt ;) 


» 1 hafa sagt sína skoðun

02.12.2004 13:12:27 / sirragudna

Komin í jólafrí!!!

Hæhæ!! Jæja þá er maður bara búinn í prófum... ég var í síðasta prófinu mínu áðan en það var samræmt stúdentspróf í íslensku... Vá hvað er gott að vera komin í jólafrí:haha:  Vorkenni ykkur mikið sem eruð jafnvel ekki byrjuð í ykkar prófum.. þið eigið samúð mína alla!  Núna fer ég bara að vinna á fullu þar til ég fer út, en það styttist í brottförina með hverjum deginum! ;)


» 10 hafa sagt sína skoðun