hæhæ.. það er orðið frekar langt síðan ég skrifaði síðast... ef bara voða lítið að segja þessa dagana
Áðan var ég í prófi í sögu503 en það er listasaga og þessi áfangi er svooo leiðinlegur.. prófið var líka ógeð...vona bara að ég nái!!! Hvaða áhuga á maður að hafa á því hver málaði hvaða málverk og hvaða stíl hann aðhylltist og blablabla
» 10 hafa sagt sína skoðun
Jæja nú hef ég sko svolítið til að segja ykkur.... ég á nefnilega flottustu stígvél í heiminum!!! Hann Arnar elskan gaf mér æðisleg hvít stígvél (í stíl við hvíta leðurjakkann sko) og þau eru svoooo flott að ég gæti borðað þau
Annars er bara allt gott að frétta.. er bara í skólanum og svo er ég að vinna í kvöld og annað kvöld og svo líka um helgina..Dugleg!! Þegar ég er ekki í skólanum eða að vinna þá fer ég í hjúkkubúninginn, Arnar greyið fór veikur heim úr vinnunni í gær þannig að ég verð nú að hugsa um hann
» 6 hafa sagt sína skoðun
» 4 hafa sagt sína skoðun
...ekki að fara að skrifa hér áður en hún Sigga mín verður alveg bandbrjáluð
Núna eru svona Tyllidagar í skólanum hjá mér.. semsagt ekki venjulegir skóladagar.. í gær voru bara svona óformegir tímar þar sem kennararnir áttu að gera eitthvað skemmtilegt, ég fór reyndar ekki í neinn tíma því ég fékk leyfi vegna þess að ég, Hildur og Laufey vorum að klára eigindlega rannsókn sem við skiluðum í gær og svo í dag og á morgun eru ýmsir atburðir sem maður getur valið um að fara á.. maður verður að safna 7 stimplum til þess að maður fái ekki fjarvistir! Í dag fór ég í Þjóðminjasafnið og fékk 2 stimpla þannig að ég verð að vera dugleg á morgun og safna 5 stimplum!!! en nóg um þetta....
Í gær þegar Arnar var búinn í vinnunni brunuðum við á Selfoss alltaf svoooo gott að koma þangað... Hún Helena átti afmæli í gær og hélt afmælisboð fyrir okkur stelpurnar..ekkert smá gaman og vá hvað voru góðar veitingar Takk fyrir mig Helena mín Jæja eftir afmælið fór ég heim og þar var Arnar í tölvunni (kemur á óvart..hummm ) Við ákváðum að gista bara á Selfossi og keyra til Reykjavíkur í morgun semsagt...sem var mjöööög sniðugt því að við sváfum svoooo vel að við ætluðum aldrei að geta vaknað
» 9 hafa sagt sína skoðun
» 1 hafa sagt sína skoðun
Hæhæ... Jæja verð ég ekki að segja ykkur smá frá helginni..
Á föstudaginn var (eins og flestir ættu að vita) fyrsti Idolþátturinn!! Ég eldaði núðlur með kjúklingabringum og grænmeti..og þetta varð svo mikill matur að ég ákvað að bjóða Hildi og Gulla í mat til okkar Arnars. Þau ætluðu að koma eftir mat og horfa á Idolið með okkur en sem betur fer voru þau ekki búin að borða þegar ég hringdi því annars hefðum við Arnar verið að borða núðlur alla helgina Jæja eftir matinn settum við okkur í stellingar og biðum eftir Idolinu... og váááá ég hélt að ég myndi stundum drepast úr hlátri bara gaman sko!! Get ekki beðið eftir næsta þætti!! Jæja svo horfðum við á Svínasúpuna og þegar hún var búin spiluðum við Friendsspilið! Rosalega skemmtilegt kvöld.
Á laugardaginn vöknuðum við Arnar frekar snemma og Arnar ákvað að við skyldum fara í gönguferð og ekki nóg með það heldur skyldum við labba upp Esjuna... Við fórum heim til Arnars og náðum í Lukku og lögðum af stað á nýja bílnum hans Arnars Við vorum varla lögð af stað þegar ég gat bara ekki meira.. ég varð að snúa við greinilega ekki í nógu góðri þjálfun.... en það kemur með tímanum! Þannig að við fórum aftur heim til Arnars og fórum í pottinn, ekkert smá notalegt!! Fórum svo heim og vorum sofnum kl.22...já ég veit, ég er greinilega orðin gömul
Vöknuðum svo eldhress á sunnudagsmorguninn og fengum okkur rosagóðan morgunmat...það var sko bara morgunverðarhlaðborð takk fyrir og svo fór ég að vinna og vann allan daginn..ekkert smá dugleg
» 2 hafa sagt sína skoðun