Ekki
verið að skafa utan af því!
Hrútur (20.mars -
20.apríl):
Þú ert óþolinmóður og fljótfær egóisti, góður að lofa öllu fögru,
en fljótur að gefast upp og láta aðra þrífa upp skítinn. Þú ert
keppnismaður og sérlega klár í að keppa við ranga aðila og slá
tilgangslaus högg útí loftið. Þú ert kvikindi, en það hjálpar
hversu einlægur, barnalegur og einfaldur þú ert.
Naut (20. apríl - 21.
maí): Þú ert latur og
þrjóskur, enda löngu staðnaður og fastur í sama farinu. Peningar og
þægindi eru það eina sem þú hugsar um, enda háður nautnum, mat,
sykri og skynörvandi efnum. Þú hreyfist ekki úr stað og selur
sannfæringu þína hæstbjóðenda. Þú ert lítið betri en stífluð
rotþró.
Tvíburi (21. maí - 20.
júní): Þú ert
eirðarlaus og yfirborðslegur, alltaf á hlaupum frá einu
tilgangslausu verkefni í annað, með hundrað ókláruð járn í eldinum.
Þú ert sí ljúgandi, enda sérfræðingur í að gefa loforð sem þú getur
ekki staðið við. Vissulega ertu vel gefinn, en þú sóar hæfileikum
þínum í blaður og óþarfa.
Krabbi (21. júní - 23.
júlí): Þú þykist vera
töff, en ert í raun aumingi og tilfinningasósa, og getur ekki talað
og tjáð þig, nema með því að væla og kvarta. Þú ert fastur í
fortíðinni og munt því fyrr en síðar kafna í drasli og gömlum
minningum. Þegar þú reiðist þá fer allt í einn graut og upp blossar
grimmd og hefnigirni. En svona dags daglega þá ertu fúll,
þunglyndur og
sjálfsvorkunnsamur.
Ljón (22. júlí - 23.
ágúst): Þú ert
eigingjarn og of upptekinn af eigin málum til að hafa áhuga á
öðrum. Þú veist allt og hlustar ekki eða öskrar á andmælendur þína.
Þú ert svo barnalegur, einlægur og trúgjarn, að það er augljóst að
þú hefur aldrei fullorðnast. Þú ert latur, en þegar þú gerir
eitthvað, þá gengur þú of langt.
Meyja (23. ágúst - 23.
september): Þú ert
einn leiðinlegasti maður í heimi, alltaf að kvarta, gagnrýna og
skipta þér af fólki, en segir aldrei neitt sem gagnast öðrum. Þú
ert alltaf á hlaupum, þykist vera duglegur, en gerir aldrei neitt
af viti, ekki frekar en stormur í tebolla. Þú ert stressuð
taugahrúga.
Vog (23. september - 22.
október): Þú þykist
vera ljúfur og vingjarnlegur, en ert í raun falskur og eigingjarn,
brosir framan í fólk, en lýgur og ferð bakvið aðra. Það tekur þig
óratíma að taka ákvaðanir, en þegar það loksins gerist, ertu
óhagganlegur, enda of latur til að hugsa málin aftur og of
upptekinn af því að smjaðra fyrir
öðrum.
Sporðdreki (23. október - 21.
nóvember): Þú ert
frekur og valdasjúkur, færð einstök mál á heilann (þráhyggja) og
ert því einhæfur og hundleiðinlegur. Þú ert ímyndunarveikur og
tortrygginn, móðgast útaf engu og gerir úlfalda úr mýflugu. Lífið
er annað hvort frábært eða ómögulegt. Þú ert eins og biluð plata,
stöðugt að spila sama lagið.
Bogmaður (22. nóvember - 21.
desember): Þú ert
týpan sem grautar í öllu, en kann ekkert, enda alltaf á hlaupum úr
einu í annað. Þú átt erfitt með að þekkja takmörk þín, ert agalaus,
flýrð óþægindi og veist ekki hvernig þú átt að nýta hæfileika þína.
Ef þú nærð tökum á einhverju, þá hleypur þú í verkefni sem þú ræður
ekki við.
Steingeit (21. desember - 20.
janúar): Þú ert stífur
og vansæll vinnualki, fastur í tilgangslausum siðum og reglum,
alltaf að skipta þér af öðrum og segja þeim að gera það sem þú
getur ekki gert sjálfur. Þú ert snobbaður og þráir stöðutákn, enda
með minnimáttarkennd sem þú heldur að hægt sé að breiða yfir með
titlum og merkjavöru.
Vatnsberi (20. janúar - 19.
febrúar): Þú ert
sérvitur og skrýtinn, og alltaf svo langt á undan samtímanum að
enginn skilur þig eða getur notað hugmyndir þínar. Vissulega ertu
svalur, en þú ert svo sjálfstæður, ópersónulegur og hræddur við
raunverulegan innileika, að þú ert í raun alltaf einn, frosinn í
einskis manns landi. Týndur á skýi í
háloftunum.
Fiskur (19. febrúar - 20.
mars): Þú ert rugluð
og týnd sál og hefur ekki hugmynd um hvernig þú átt að nýta
hæfileika þína eða í hvaða átt þú átt að fara. Þú vilt vera alls
staðar og upplifa allt. En þar sem þetta er ómögulegt, þá fer allt
í vitleysu. En það gerir ekkert til, þú ert sérfræðingur í
sjálfsblekkingum og því að flýja
raunveruleikann.